|
Hver erum viðÁ meðal allra þeirra fjölmörgu vörutegunda sem eru á markaðinum í dag er mjög erfitt að finna þægilega skó sem maður er sáttur með. Þess vegna fundum við upp Simple, sem eru óvenjulegir en jafnframt frábærir. Um það bil grilljón pörum seinna…meira eða minna… þá höfum við lært ýmislegt. Eða frekar, lært heilmikið, og ekkert er mikilvægara en eftirfarandi: HVERNIG við búum til skóna okkar og HVERS VEGNA við búum þá til. Það þýðir að við verðum að finna fleiri sjálfbærar leiðir til að vinna verkið svo að við getum framleitt grilljón pör í viðbót. Það er eiginlega þar sem við erum í dag… á krossgötum, meðvituð um ábyrgð okkar á jörðinni jafnframt því að þurfa að greiða reikningana. Litla sæta fyrirtækið kemst í snertingu við sinn innri hippa. FramkvæmdStundum er vinnan okkar sjáanleg meðan á öðrum tima er erfiðara að koma auga á hana. Það mikilvægasta er þó að við erum fast ákveðin í því að gera vörur okkar 100% vistvænar. Að nota efni og framleiðsluferli sem gera vörurnar þannig að hún eyðist í náttúrunni er aðferð sem við köllum Green Toe. Það er engin töfraformúla. Það er veruleiki sem við vonum að leiði til bjartari og grænni framtíðar. Framleiðslan á Green Toe mælist á skalanum góður, betri, bestur. Best-tegundirnar eru þær vörur sem eru að mestu úr efnum sem eyðast í náttúrunni. Það er “best” sem setur staðalinn fyrir væntanlegar vörur okkar. Þessi einstöku efni og útfærslur sjást einnig í tegundunum “góður” og “betri” en í hærri staðli í tegundinni “best”. Flott, eða hvað? |



